Профиль пользователя Sir ArnarArnar GuðmundssonФотографииБлогСписки Сервис Справка

Arnar Guðmundsson

Профессия
Расположение
Golfari, hestaáhugamaður, vel þjálfaður íþróttamaður og á frábæra fjölskyldu.
Фотография 1 из 3
Другие альбомы (1)
мая 22

Alþingi

Það var kannski kominn tími á smá færslu hjá mér. Við höfum jú öll áttað okkur á því að alþingiskosningar eru afstaðnar, sem betur fer. Og eins og mig grunaði þá urðu úrslit kosninganna ekki nógu krassandi. Ég hefði til dæmis aldrei viljað sá Árna sakborning Johnsen inná þingi aftur. Björn Bjarnason hefði alveg mátt fá fleiri útstrikanir og að endingu hefði Þorgerður Katrín menntamálaráðherra Reykvíkinga ( hún er allavegana ekki menntamálaráðherra landsbyggðarinnar) gerast sendiherra í Afganistan. En lífið er ekki alltaf eins og maður vill hafa það. Maður verður víst að sætta sig við sjálfstæðisflokkinn fjögur ár í viðbót. En það er þó ljós í þessu öllu saman. Samfylkingin ætlar að rétta hjálparhönd. Allt er betra en aumingja framararnir, meira að segja VG hefði verið betra. En Steingrímur J var samkvæmur sjálfum sér og ákvað að halda áfram að vera í stjórnarandstöðu. Hann hefði getað slept kosningarbaráttunni því hann var hvort eð er alltaf búinn að ákveða að vera í stjórnarandstöðu.
 
En Ómar Ragnarsson, ekki veit ég hvað hann ætlaði sér. Ef hann hefði viljað í fullri alvöru að íslandhreyfingin hefði haft áhrif, þá hefði hann fengið fleiri atkvæði ef hann hefði farið í gegnum þessar kosningar án þess að segja nokkurt orð. Maður sem talar og hugsar svo, getur varla talist annað en fljótfær og hugsunarlaus maður, eða með öðrum orðum talsmaður "draumlandsstefnunar".
 
Það er þó ekki svo að skilja að ég hafi lesið bókina Draumalandið eftir Andra Snæ, nei svo slæmt er það nú ekki. En ég hef heyrt viðtöl við þann ágæta mann og alltaf fer maður að pæla í því afhverju er tekið viðtal við hann. Hann er eins og Ómar Ragnarsson, veit ekki alveg hvað hann ætlar að segja en segir svo eitthvað bara til að segja eitthvað.......maður hefur á tilfinningunni að hann hafi ekki skilið spurninguna.
 
Hvaða lærdóm getum við svo dregið af þessum kosningum? Jú alltof margir Reykvíkingar létu Jóhannes í Bónus plata sig til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn bara til að geta strikað Björn Bjarnason út. Og ef alþingiskosningar væru ekki leynilegar þá væri Framsóknarflokkurinn ekki til. Því segi ég, hættum að taka mark á Bónussvíninu og höfum alþingiskosningar opinberar.
 
Kv. Sir Arnar
 
 
апреля 09

Easter

Þetta var bara nokkuð góð páskahelgi hjá okkur. Júlíus Fannar kom á miðvikudeginum fyrir skírdag og fór aftur í dag. Það var ansi mikið um að vera hjá okkur. Við byrjuðum á að eyða skírdegi í fótbolta, það er að segja við horfðum á fótboltaæfingar hjá Önnu Margreti en hún var að æfa undir stjórn nýs þjálfara, Höllu Gunnars. Reyndar byrjaði föstudagurinn langi alveg eins, við horfðum á fótboltaæfinar hjá Önnu Margréti. Sundlagarnar voru náttúrulega skoðaðar vandlega bæði hér í Neskaupstað og á Eskifirði. Fannardalurinn var síðan genginn seinni part á föstudeginum og snæddur var kvöldverður í boði óðalshjónanna á Hólum, þökkum við kærlega fyrir þær flottu veitingar. X-factor var tekinn á Marbakkanum að heimilsfólkinu farstöddu en það skilaði sér þó síðar um kvöldið úr reisu í borg höfðusins. Á laugardaginn fóru Ingibjörg og börnin öll á skíði en ég sem er ekki mikill skíðamaður fór hinsvegar á Reyðarfjörð og dæmdi jómfrúarleik minn í knattspyrnu sem unglingadómari og gekk það rosalega vel. Reyndar er ekki hægt að segja að þessi ferð mín á Reyðarfjörð hafi fallið í góðan jarðveg þar sem restin af fjölskyldunni þurfti að bíða eftir mér uppí fjalli, öll að drepast úr kulda, þetta er svo sem engin hitabeltis íþrótt þessi skíðaíþrótt. Páskadagurinn byrjaði á því að börnin leituðu sig, sum hver, alveg vitlaus af páskaeggjum, sem fundust eftir vandaðar vísbendingar frá heimilisföðurnum. Eftir smá bragða-test á eggjunum var haldið upp í Oddsskarð á skíði. Þar kepptu Þórður, Ólafur og Sigrún, en þau eru frændfólk Þórðar í móðurætt á páskaeggjarmóti. Skemmst er frá því að segja að Þórður sem var ekki að keppa í fyrsta sinn stóð sig með brýði  en vann reyndar ekki ( keppt er í samhliða svígi). Sá sem er á undan í mark fær í verðlaun páskaegg (í smærri kantinum) og gefur þeim sem tapaði og fer svo aftur upp í start og heldur keppni áfram en hinn er úr leik. Ólafur og Sigrún sem voru að keppa í fyrsta sinn voru frábær í brautinni. Ólafur var svo heppinn að hann hafði undanfara sem var enginn annar en afi hans, óðalsbódinn á Hólum, Hákon Björnsson.
 
Hestarnir voru að sjálfsögðu ekki skildir útundan. Eftir gott skíðamót hjá krökkunum var farið á hestbak með börnin. Reyndar byrjaði það ekkert sérlega vél. Þórður og Anna Margrét fóru ásamt móður sinni að sækja hestana og fengu að sitja á hestunum að hnakkageymslunni þar sem það var svo mikil drulla í gerði hestanna. En þá skeði það óvænta, Þórður rann af baki og beint á andlitið í drulluna. Hann lét þetta þó ekki á sig fá og hélt ótrauður áfram hestastússinu.
 
Svona var þessi skemmtilega páskahátíð hjá þessari fjölskyldu og hafði hún, held ég, öll bara gaman af þessu.
 
Kveðja Sir Arnar páskalamb.
марта 23

Moggablogg

Nú hef ég opnað alþjóðlega skoðana síðu á mbl.is, svo kallað moggablogg. Hægt er að nálagst skoðanir mínar hér til hægri. Ég stefni eingöngu á að tjá skoðanir á fréttum mbl.is. Ég mun svo reyna blogga reglulega á þessari síðu og þá kannski meira um mig og mína fjölskyldu.
 
Ég og Ingibjörg mín, skelltum okkur til Rvík. þann 10. mars í afmælið hjá Ingva, bróður mínum. Þetta var alveg rosalega skemmtilegt afmæli. Þarna mætti karlakórinn Stefnir sem Ingvi er meðlimur í og söng nokkur skemmtileg lög. Ó! ég gleymdi alveg að geta þess að afmælið var haldið í Grafarholtinu, nánar til tekið í Baðhúsinu, lítill en snotur salur. Nú þarna hittum við öll systkynin mín og að sjálfsögðu pabba og mömmu. Hreint magnað afmæli.
 
Við erum búin að panta okkur ferð til Danmerkur ásamt minum ástkæru tengdaforeldrum. Við ætlum að fljúga frá Egilsstöðum og vera í 10 daga. Verðum í bara nokkuð flottu sumarhúsi á austurströnd Jótlands. Læt hér fylgja linkinn á þetta sumarhús.  http://www.dancenter.dk/  nokkuð flott hús með mikla sál hef ég heyrt. Bara velja hús númer 29745 og þá getið þið skoðað það betur.
                                   Preview
Hef heyrt að hún geti fylgt með
Þarf að vísu að borga 3.000 danskar kr.
og þá lætur hún renna í baðið.
 
Preview
Þetta er svo húsið.
Ekta sveitarómantík.
 
Kv.
Sir Arnar
марта 14

Allt að verða vitlaust

Núna í þessum töluðum orðum kl. 17:40 er allt að verða vitlaust hér á Reyðarfirði. 5 lögreglubílar keyra hér fram og aftur um bæinn að elta einhvern ökuníðing. Talið er að um utanbæjarmann sé að ræða eða hugsanlega einhvern frá Egilsstöðum eða Seyðisfirði. En hér er sem sagt allt vitlaust og sírenur og allur pakkinn.
 
Kv.
Sir Arnar
fyrstur með fréttirnar.

Afmæli

Mín ástkæra móðir á afmæli í dag.
Hún er 73ja ára og er ég afar stoltur af henni.
Við elskum þig og pabba öll.
Til hamingju með afmælið mamma mín.
 
Kv.
Sir Arnar og fjölsk.